Brýn málefni á Norðurlandi vestra

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fundaði með ráðherrum í forsætisráðuneytinu þann 20. mars sl. Samtökin hafði óskað eftir fundi fyrir fjórum mánuðum síðan þar sem nauðsynlegt er að taka á nokkrum brýnum málefnum sem snerta landshlutann, samkvæmt Bjarna Jónssyni formanni SSNV.

Við áttum saman ágætis fund og nú verðum við bara að sjá hvað kemur út úr því,“ sagði Bjarni í samtali við Feyki en fundinn sátu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og ráðherrarnir Steinsgrímur J. Sigfússon,Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson, auk stjórnar SSNV.

„Á fundinum fór stjórn SSNV yfir stöðuna á svæðinu og lagði fram tillögur til úrbóta,“ sagði Bjarni og bætti við að rík áhersla var lögð á að sporna gegn fólksfækkun á svæðinu og fækkun starfa. „Það hefur verið gríðarleg fækkun á opinberum störfum undanfarið, til að mynda þá fækkaði þeim um 50 í Skagafirði sl. 3 ár, og ekki í stærra samfélagi en það,“ segir Bjarni en stjórn SSNV vill snúa við þeirri þróun.

Lagðar voru fram tillögur um hvernig mætti auka störf hjá opinberum stofnunum á Norðurlandi vestra og hvernig hægt væri að flytja fleiri verkefni frá t.d. matvælastofnun, umhverfisstofnun og vinnueftirlitinu til landshlutans. SSNV bauðst einnig til að taka við útibúi Nýsköpunarmiðstöðvar á Norðurlandi vestra og er SSNV jafnframt með átak í gangi varðandi ungt fólk og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Stjórn SSNV óskaði eftir því að fá yfirlýsingu frá stjórnvöldum þess efnis að Blönduvirkjun yrði nýtt til atvinnuuppbyggingar á svæðinu og stuðning við áform heimamanna um uppbyggingu gagnavers sem nyti orku hennar.

Hveravellir bárust einnig á góma en Hveravallafélagið óskar eftir að fá afnot af eignum ríkisins til að nýta til uppbyggingar á ferðaþjónustu á staðnum. Þar að auki vildi stjórn SSNV setja verkefni á Samgönguáætlun en ekkert verkefni á landshlutanum er á áætluninni.

Óskuðu eftir svörum hið fyrsta

Á fundinum var óskað eftir samstarfi og fyrirgreiðslu um að leggja hitaveitu í Fljótum og Hrútafirði. Þar var einnig óskað eftir auknum fjármunum við almenningssamgöngur og undir þann málaflokk féll að koma flugi aftur á til Sauðárkróks.

Stjórn SSNV fór einnig fram á að byggja upp endurhæfinguna á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, þannig að hún geti þjónustað fólki á landsvísu. Sömuleiðis vill stjórn SSNV tryggja framtíð Hólaskóla en samkvæmt Bjarna er búið að koma honum í ágætan farveg og kemur hann öllum landshlutanum til góða.

Við fórum líka fram á að sjávarbyggðir fá réttmæta hluthækkun í gjaldtöku í sjávarútvegi,“ sagði Bjarni og bætir við að sanngjarnt sé að sjávarbyggðirnar njóti þar góðs af.

Stjórn SSNV óskaði eftir því að fá svör hið fyrsta um hvað hægt sé að gera strax og að sögn Bjarna kemur það í ljós á næstu dögum um hvert framhaldið verði.

 

Fleiri fréttir