Brýn málefni til umræðu á aðalfundi LBL
Samtökin Landsbyggðin lifi – LBL, verður með aðalfund sinn laugardaginn 8. október í Ketilási í Fljótum. Samtökin er hreyfing fólks á Íslandi sem vill örva og efla byggð um land allt.
Samtökin Landsbyggðin lifi eru landssamtök félaga, áhugamannahópa og einstaklinga sem vilja starfa í anda samtakanna og bjóða þau nýju fólki velkomið í samtökin. Þeir sem vilja vera í stjórn félagsins er bent á að hafa samband við Guðjón Dalkvist, formann á póstfangið dalli@snerpa.is eða s. 8669386. Nánari upplýsingar um samtökin má finna á heimasíðu þeirra.
Á fundinum verða meðal annars til umræðu ný fjárlög þar sem enn frekar niðurskurður hefur verið boðaður á stofnunum á landsbyggðinni. Íbúar bíða eftir þeim dómi með ugg í brjósti, eins og Regína Sigurðardóttir frá Húsavík segir í pistli sínum, sem birtur var Feyki.is:
„Íbúar á landsbyggðinni eru komnir í spor músarinnar sem gekk í gin kattarins eftir að hann var búinn að leika sér að henni í drjúgt langa stund - það er betra að segja okkur það strax að það sé mat stjórnvalda að leggja af byggð utan við ákveðinn radíus í kringum höfuðborgina en að halda áfram að draga okkur á asnaeyrunum,“ og bætir svo við: „Fjárlög eiga að styðja önnur landslög ekki vera þeim æðri. Það er óþolandi að fjárlög til eins árs kollvarpi forsendum fyrir byggð í landinu. Skammtíma markmið séu sett ofar langtímamarkmiðum. Máttvana opinberar stofnanir eru í raun einskis nýtar.“
Á fundinum einnig heiðrað Ómar Ragnarsson fyrir ómetanlegt frumkvöðlastarf hans að náttúruverndarmálum í áratugi. Fundurinn verður eins og fyrr segir að Ketilási kl. 14, á laugardaginn nk.