B&S Restaurant - Veitingastaður við hringveginn á Blönduósi

Potturinn á Blönduósi hefur skipt um nafn og heitir nú B&S restaurant.
Potturinn á Blönduósi hefur skipt um nafn og heitir nú B&S restaurant.

Veitingastaðurinn B&S Restaurant á Blönduósi er líklega á hentugasta stað sem hugsast getur fyrir þá sem eiga leið um hringveginn. Framan við veitingastaðinn sem er í næsta húsi við N1 þjónustumiðstöðina er stórt bílastæði sem auðveldlega rúmar fjölda einkabíla og langferðabifreiða.

 Áður hétum við Potturinn Restatrant. En tímarnir breytast og í kjölfar vinnu við stefnumótun ákváðum við að breyta nafni staðarins. Við ætlum að vera áfram með hagstæð verð samfara því að notast við besta fáanlega hráefnið í veitingum okkar. Eins og mörgum er eflaust kunnugt um höfum við sérhæft okkur í að taka við stórum og smáum hópum og veita hraða og faglega þjónustu, enda eru ferðahópar oftast með stíft prógramm. Samhliða þjónustu við ferðahópa mun B&S Restaurant eftir sem áður kappkosta að veita einstaklingum sem ýmist dvelja á svæðinu eða eiga leið um góða og persónulega þjónustu.

Við munum áfram leggja áherslu á fjölbreyttan matseðil þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á viðráðanlegu verði. Þannig bjóðum við uppá „À la carte”  samhliða fjölbreyttu úrvali af hamborgurum, pizzum og pasta réttum. Barnamatseðillinn vinsæli verður áfram á sínum stað ásamt sérstaklega vinsælu barnahorni okkar þar sem yngstu gestirnir una sér vel.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir