Búist við spennandi keppni í fimmgangi

Miðvikudaginn 12.mars fer fram annað mót í KS-Deildinni þar sem keppt verður í fimmgangi. Keppni hefst kl 20:00 í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Búist er við æsispennandi keppni, en sigurvegararnir frá því í fyrra eru meðal þeirra sem eru skráðir til leiks.

Í fyrra sigraði Ísólfur Líndal Þórisson fimmganginn á Sólbjarti frá Flekkudal en þeir eru skráðir til leiks nú á miðvikudaginn og ætla sér örugglega að verja titilinn. Það er alls ekki gefið að það gangi eftir því sterkir hestar eru skráðir. Þar má nefna stóðhestana Stjörnustæl, Þey og Starkarð.

Guðmundur S. Hjálmarsson hlýtur að verða á pöllunum þar sem hann á tvo hesta skráða, þá Bratt og Villanda. Athygli vekur að Bjarni Jónasson hefur lánað Elvari Gátu frá Ytra-Vallholti og spurningin er hvort hann muni ríða upp fyrir Bjarna sem mætir til leiks með stóðhestinn Dyn frá Dalsmynni.

Í heildina er þetta sterkur hópur og hinir mögnuðu knapar sem keppa í KS-deildinni í vetur munu ábyggilega bjóða uppá spennandi keppni á miðvikudagskvöldið, að því er segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum KS-deildarinnar.

Aðgangseyrir er 1500,- og gildir miðinn sem happdrættismiði. Tveir folatollar eru í verðlaun, undir stóðhestana Gretti frá Grafarkoti og Þórálf frá Prestbæ.

Ráslisti kvöldsins er hér að neðan:

  1. Gísli Gíslason - Karl frá Torfunesi - Draupnir - Þúfur
  2. Ísólfur Líndal Þórisson - Sólbjartur frá Flekkudal - Laekjamot.is
  3. Sölvi Sigurðarson - Starkarður frá Stóru-Gröf - Laekjamot.is
  4. Sigvaldi Lárus Guðmundsson - Leiftur frá Búðardal - Weierholz
  5. Þorbjörn  H. Matthíasson - Freyja frá Akureyri - Björg - Fákasport
  6. Arnar Bjarki Sigurðarson - Engill frá Galtastöðum - Draupnir - Þúfur
  7. Líney María Hjálmarsdóttir - Brattur frá Tóftum - Hrímnir
  8. Jóhann B. Magnússon -  Skyggnir frá Bessastöðum - Weierholz
  9. Hörður Óli Sæmundarson - Hreinn frá Vatnsleysu - Hrímnir
  10. Þórarinn Eymundsson - Þeyr frá Prestbæ - Hrímnir
  11. Baldvin Ari Guðlaugsson - Svarta-Meyjan frá Hryggstekk - Top Reiter - Syðra Skörðugil
  12. Tryggvi Björnsson - Villandi frá Feti - Top Reiter - Syðra Skörðugil
  13. Vigdís Gunnarsdóttir - Flosi frá Búlandi - Laekjamot.is
  14. Mette Mannseth - Stjörnustæll frá Dalvík - Draupnir - Þúfur
  15. Hlín C Mainka Jóhannesdóttir  - Sísí frá Björgum - Björg - Fákasport
  16. Elvar E. Einarsson - Gáta frá Ytra-Vallholti - Top Reiter - Syðra Skörðugil
  17. Bjarni Jónasson -  Dynur frá Dalsmynni - Weierholz
  18. Viðar Bragason - Þórdís frá Björgum - Björg - Fákasport

-

Fleiri fréttir