Bundið slitlag á Svínvetningabraut

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hefur samþykkt umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni, til að endurbyggja Svínvetningabraut nr. 731, í 6,5 m breidd og leggja bundnu slitlagi á um 5,15 km löngum kafla frá slitlagsenda vestan við Hnjúkahlið austur fyrir heimreið að Köldukinn.

Útboðið hefur verið auglýst og verða þau opnuð þann 1. apríl nk. Að sögn Gunnari Helga Guðmundssyni svæðisstjóra Norðursvæðis hjá Vegagerðinni verður farið í framkvæmdirnar í sumar en lögn klæðingar skal vera lokið fyrir 1. september 2014 og skal verkinu vera að fullu vera lokið 1. október.

Fleiri fréttir