„Bútar úr fortíð“ - Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2012
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir mun opna sýningu sína „Bútar úr fortíð“ í Heimilisiðnaðarsafninu þann 28. maí, sem er annar í Hvítasunnu, kl. 15.
„Íris hefur vakið athygli fyrir endurnýtingu og frumlega notkun hráefnis úr ýmsum áttum sem hefur verið einkennandi fyrir list hennar,“ segir í fréttatilkynningu frá Heimilisiðnaðarsafninu.
Við opnunarathöfnina mun Íris og eiginmaður hennar Hjörleifur Hjartarson, úr dúettinum „Hundur í óskilum“, taka lagið.
„Að vanda verður boðið upp á kaffi og kleinur, mjólk og kókómjólk fyrir börnin. Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir,“ segir í tilkynningu.
Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10 – 17.