Byggðastofnun sýknuð í lánamáli
Í morgun var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra dómur í máli Samvirkni ehf. gegn Byggðastofnun þar sem stefnandi (Samvirkni) krafðist þess aðallega að viðurkennt yrði með dómi að veðskuldabréf, dagsett 6. febrúar 2008, útgefið af stefnanda (Byggðastofnun) til stefnda, feli í sér skuldbindingu í íslenskum krónum og sé verðtryggt þannig að fjárhæð skuldabréfsins sé bundin við gengi japansks yens, í andstöðu við 13. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 38/2001.
Á vef Héraðsdóms Norðurlands vestra segir: „Til vara gerir stefnandi þá kröfu að stefnda verði gert að standa við aðalskyldu skuldabréfs, dagsett 6. febrúar 2008, útgefið af stefnanda til stefnda, þannig að stefndi afhendi stefnanda 43.536.945,5 japönsk yen gegn því að stefnandi skili stefnda um leið til baka 27.319.433 íslenskum krónum sem stefndi greiddi fyrir skuldabréfið inn á reikning stefnanda. Í báðum tilfellum krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefnda að mati dómsins.“
Stefndi krafðist sýknu af öllum kröfum stefnanda og þess að stefnandi greiði honum málskostnað og við ákvörðun hans verði tekið tillit til þeirra hagsmuna sem um er deilt í málinu og þess að stefndi er ekki virðisaukaskattsskyldur.
Niðurstaða dómsins er að lán sem Byggðastofnun veitti Samvirkni ehf. á Akureyri í febrúar 2008 teldist vera lögmætt lán í erlendri mynt en ekki lán í íslenskum krónum með ólögmætri gengistryggingu. Dómurinn hefur fordæmisgildi um aðra lánasamninga stofnunarinnar í erlendri mynt. Var því Byggðastofnun sýknuð af öllum kröfum stefnanda í málinu.