Cirkus Baldoni á ferðinni

Cirkus Baldoni lék listir sínar í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi og Íþróttahúsinu á Sauðárkróki um liðna helgi. Á Blönduósi voru áhorfendur um 200 talsins og var mikil ánægja með sýninguna, enda miklir fagmenn þar á ferð, eins og segir á vefnum Húni.is.

Haft er eftir Róbert Daníel Jónsyni, forstöðumanni Íþróttamiðstöðvarinnar, að sirkusfólkið hefði einnig verið gríðarlega ánægt með viðtökurnar og væri meira en til í að koma aftur á Blönduós. Meðfylgjandi mynd er frá Róbert en fleiri myndir er að finna á Húnahorninu.

 

 

Fleiri fréttir