Clapton krækti í þann stóra
Breski tónlistarmaðurinn Eric Clapton krækti á föstudaginn fyrir viku síðan í stærsta lax sem veiðst hefur í Vatnsdalsá í Austur-Húnavatnssýslu í sumar. Reyndist það vera 108 sm langur hængur sem að öllum líkindum er jafnframt sá stærsti sem veiðst hefur á landinu það sem af er sumri.
Breska goðinu til aðstoðar var leiðsögumaðurinn Sturla Birgisson. „Hann krækti í hann í Línufljóti en landaði svo í Móahellu, sem þýðir að hann hljóp um kílómetra niður með ánni,“ sagði Sturla í samtali við Feyki á mánudaginn.
Sturla segir að Clapton hafi verið fastagestur í ánni síðan 2009 en sjálfur hefur hann verið honum til leiðsagnar síðan hann kom í Laxá á Ásum árið 2003. Staðfestir Sturla að bæði veiðimaður og laxinn hefðu verið eftir sig eftir átökin. Sá síðarnefndi hefði þó jafnað sig sínu fyrr og kvatt með sporðaköstum eftir að honum var sleppt í ána á ný.
Mældist laxinn sem fyrr segir 108 sm. Á mbl.is kemur fram að annar breskur veiðimaður hafi veitt álíka stóran lax í Laxá í Aðaldal fyrr í sumar. Þá er greint frá því á heimasíðu Vatnsdalsár að sl. föstudag hafi einnig verið landað 104 sm hæng úr Línufljóti. Sá kom með látum á fluguna Night hawk 14 og var viðureignin hin ævintýralegasta.