Dælustöð við Blöndubrú

Á fundi skipulags-, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar í gær var tekin fyrir erindi frá Garðari Briem fyrir hönd Rarik ohf. þar sem óskað er eftir lóð undir dælustöð fyrir hitaveitu við Blöndubrú.

Nefndin samþykkti erindið um lóðina fyrir sitt leiti og fól byggingarfulltrúa frekari vinnslu málsins. Þar sem húsið mun verða á áberandi stað í bænum óskar nefndin eftir að húsið falli vel að byggingum í nágrenninu.

Fleiri fréttir