Dagbókin hans Dadda á Blönduósi
Eins og sagt var frá í Feyki í þessari viku frumsýnir Leikfélag Blönduóss, í samstarfi við Dreifnám FNV í A-Hún, leikritið Dagbókin hans Dadda næstkomandi föstudag. Höfundur verksins er Sue Townsend og þýðandi Guðný Halldórsdóttir. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og er þetta í fyrsta skipti sem hann leikstýrir hjá félaginu.
Sýningin í ár er sett upp í samstarfi við Dreifnám í A-Hún og er meirihluti nemenda sem tekur þátt í leiksýningunni með einhverjum hætti og fá þau einingu fyrir. Alls koma að þrjátíu manns að uppsetningunni og eru mörg ný andlit í leikarahópnum. Rætt er við formann Leikfélagsins í Feyki í þessari viku.
Næstu sýningar eru laugardaginn 29. mars klukkan 20:00, sunnudaginn 30. mars klukkan 17:00 og þriðjudaginn 1. apríl klukkan 20:00. Miðaverð er 2.500 krónur en 2.000 krónur fyrir ellilífeyrisþega, öryrkja og börn 14 ára og yngri.