Dagbókin hans Dadda fær frábærar móttökur

Leikfélag Blönduóss frumsýndi leikritið Dagbókin hans Dadda síðastliðið föstudagskvöld í Félagsheimilinu á Blönduósi. Samkvæmt Húna.is heppnaðist frumsýningin vel og skiluðu allir leikarar og aðrir þátttakendur í sýningunni sínum hlutverkum með stakri prýði.

Önnur sýning fór fram á laugardaginn og sú þriðja á sunnudaginn og mættu yfir hundrað manns á hana. „Það er því ekki annað hægt að segja en að sýningin sé að fá góðar viðtökur,“ segir á Húna.is.

Höfundur verksins er Sue Townsend og þýðandi Guðný Halldórsdóttir. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson og er þetta í fyrsta skipti sem hann leikstýrir hjá félaginu. Sýningin í ár er sett upp í samstarfi við Dreifnám í A-Hún og er meirihluti nemenda sem tekur þátt í leiksýningunni með einhverjum hætti og fá þau einingu fyrir. Alls koma að þrjátíu manns að uppsetningunni og eru mörg ný andlit í leikarahópnum.

Næsta sýning er í dag, þriðjudaginn 1. apríl, klukkan 20:00. Miðaverð er 2.500 krónur en 2.000 krónur fyrir ellilífeyrisþega, öryrkja og börn 14 ára og yngri.

Fleiri fréttir