Dagskrá í nýjum húsakynnum Rannsóknaseturs HÍ í dag
Húsnæði Rannsóknarsetur HÍ Norðurlands vestra verður opið fyrir almenning í fyrsta sinn í dag, í tengslum við Sögulega safnahelgi. Við tilefnið hefur verið sett saman skemmtileg dagskrá fyrri unga sem aldna.
Dagskrá í dag, laugardag:
Kl. 13-15 - Námskeið Reynis Þórs Eggertssonar um íslenska handritamenningu:
- Helena einhenta og Giletta nafnlausa
- Hvernig missa persónur nöfn, hendur og fleira í gömlum bókum?
- Skemmtilegt námskeið fyrir fólk á öllum aldri
- Þátttakendur fá tækifæri til að reyna á eigin skinni hvernig sögur breytast og þróast eftir því sem fleiri taka þátt í að gera þær aðgengilegar fyrir nýja lesendur og hlustendur. Þar geta ungir sem aldnir látið ljós sín skína og skemmt sér.
Kl. 15:05-15:25 - Heimildarmynd um ferðir Emily Lethbridge eftir Patrick Chadwick
Kl. 16:00 - Sögustaðir Íslands: Nútímapílagrímaferð Ferðasaga Emily Lethbridge
- Áður en Emily Lethbridge lagði upp frá Cambridge keypti hún sér gamlan sjúkrabíl og fór á námskeið í bifvélavirkjun. Um þessar mundir lýkur hún ársferð um Ísland þar sem hún las Íslendingasögurnar á þeim stað sem þær áttu sér stað. Emily, sem er breskur sérfræðingur í íslenskum fornbókmenntum sýnir myndir og segir frá ferðum sínum, lestri og reynslu – á nútímamáli. http://sagasteads
Fleiri dagráratriði er í boði á SKagaströnd í dag og má þar nefna Kántrýbæ, verður einnig opinn frá kl. 13-21 og Spákonuhof frá kl. 13-17
Sjá nánar um dagsrká Huggulegs hausts á Norðurlandi vestra, safnadagskrá.