Dagskrá Kántrýdaga á Skagaströnd 2012

Kántrýdagar á Skagaströnd verða haldnir dagana 17. - 19. ágúst nk. og hefur dagskrá hátíðarinnar verið birt á heimasíðu Svf. Skagastrandar. Á heimasíðu Sveitarfélagsins segir að dagskráin sé nokkuð hefðbundin; Kántrýsúpan er á sínum stað í tjaldinu, þar verða líka tónleikar föstudags og laugardagskvöld.

Í Kántrýbæ verða böll og sýning kvikmyndarinnar Kúrekar norðursins. Hljómsveitirnar Gildran, Klaufar, Illgresi, 1860 og Sefjun eru kallaðar til leiks. Ljósmynda- og listsýningar ásamt handverkssölu eru einnig í boði ásamt spádómum og gönguferðum.

Frá Kántrýdögum 2011

Dagskrá Kántrýdaga 17. – 19. ágúst 2012:

Fimmtudagur 16. ágúst 

  •   Götur, garðar og hús á Skagaströnd skreytt

Föstudagur 17. ágúst    

11:00 - 18:00 Djásn og dúllerí í Gamla Kaupfélagshúsinu

Handverk og hönnun – til sölu

11:30 - 22:00 Kántrýsetur opið í Kántrýbæ

Yfirlit um ævi og starf Kántrýkóngsins og kvikmyndin „Kúrekar

norðursins“ sýnd í Kántrý 2

11:30 - 24:00 Ljósmyndasýningin „Með eigin augum“ í Kaffi Bjarmanesi

Vigdís H. Viggósdóttir sýnir.

13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd

Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.

13:00 - 18:00 Spákonuhof

Sýning- Þórdís spákona- Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur

15:00 - 18:00 Opið hús í Nes listamiðstöð

Myndlistarsýning

18:00  Kántrýdagar hefjast með fallbyssuskoti við Kaffi Bjarmanes

18:00 - 20:00 Ljósmyndasýningin „Mannlíf á Skagaströnd“ í íþróttahúsinu

Árni Geir Ingvarsson sýnir.

18:15 - 19:00 Vatnsfótbolti á íþróttavelli

18:50 - 19:00 Karamelluflugvél yfir íþróttavelli ef veður leyfir

19:00 - 20:00 Kántrýsúpa í hátíðartjaldi

BioPol ehf. býður í súpu

19:00 - 21:00 Hoppukastalar við hátíðarsvæði

20:00 - 22:00 Tónleikar í hátíðartjaldi

Hljómsveitirnar „1860“ og „Contalgen Funeral“ skemmta

22:00 - 23:00 Varðeldur og fjöldasöngur í Grundarhólum

23:00 - 01.00 Lifandi tónlist í Kaffi Bjarmanesi

Guðlaugur Ómar spilar og syngur

23:00 - 3:00 Ball í Kántrýbæ

Hljómsveitin Gildran leikur fyrir dansi.

Laugardagur 18. ágúst     

10:00  Þórdísarganga á Spákonufell

Lagt upp frá golfskálanum

11:00 - 13:00 Dorgveiðikeppni á höfninni

Verðlaun fyrir þyngsta fiskinn

11:00 - 18:00 Djásn og dúllerí í Gamla Kaupfélagshúsinu

Handverk og hönnun – til sölu

11:30 - 22:00 Kántrýsetur opið í Kántrýbæ

Yfirlit um ævi og starf Kántrýkóngsins og kvikmyndin „Kúrekar

norðursins“ sýnd í Kántrý 2

11:30 - 24:00 Ljósmyndasýningin „Með eigin augum“ í Kaffi Bjarmanesi

Vigdís H. Viggósdóttir sýnir

12:00 Fallbyssuskot við Kaffi Bjarmanes

13:00 - 15:00 Götumarkaður á Bogabraut

13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd

Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“

13:00 - 18:00 Ljósmyndasýningin „Mannlíf á Skagaströnd“ í íþróttahúsinu

Árni Geir Ingvarsson sýnir

13:00 - 19:00 Spákonuhof

Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur. Fjölskrúðug saga hússins rakin

fyrir gestum og sögustundir um Þórdísi spákonu- kl. 13:10,

14:00,15:00,16:00, og 17:00

13:00 - 20:00 Hoppukastalar við hátíðarsvæði

15:00 - 16:30 Barna- og fjölskylduskemmtun í hátíðartjaldi

Sirkus Íslands – sýning - Kántrýhvolparnir, söngvakeppi barna og fleira

skemmtilegt

15:00 - 18:00 Opið hús í Nes listamiðstöð

Myndlistarsýning

17:00 - 18:00 Frumsýning myndarinnar „Sumar á Skagaströnd“ í Fellsborg

Heimildarmynd Halldórs Árna Sveinssonar

20:30 - 23:00 Tónleikar í hátíðartjaldi

Hljómsveitirnar Sefjun, Gildran, Klaufar og Illgresi leika

23:00 - 01.00 Lifandi tónlist í Kaffi Bjarmanesi

Hljómsveitin Trukkarnir leikur af fingrum fram

23:00 - 3:00 Ball í Kántrýbæ

Kántrýsveitin Klaufar slettir úr dansklaufunum

Sunnudagur 19. ágúst

11:00 - 18:00 Djásn og dúllerí í Gamla Kaupfélagshúsinu

Handverk og hönnun – til sölu

11:30 - 22:00 Kántrýsetur opið í Kántrýbæ

Yfirlit um ævi og starf Kántrýkóngsins og kvikmyndin „Kúrekar

norðursins“ sýnd í Kántrý 2

11:30 - 22:00 Ljósmyndasýningin „Með eigin augum“ í Kaffi Bjarmanesi

Vigdís H. Viggósdóttir sýnir

12:00 Fallbyssuskot við Kaffi Bjarmanes

13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd

Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“

13:00 - 17:00 Ljósmyndasýningin „Mannlíf á Skagaströnd“ í íþróttahúsinu

Árni Geir Ingvarsson sýnir

13:00 - 18:00 Spákonuhof

Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur. Fjölskrúðug saga hússins rakin

fyrir gestum og sögustundir um Þórdísi spákonu- kl.14:00, 15:00 og 16:00

14:00 - 15:00 Gospelmessa í hátíðartjaldi

Kirkjukór Hólaneskirkju sér um tónlistarflutning undir stjórn Óskars

Einarssonar

16:00 - 17:00 Tónleikar í Hólaneskirkju

Tómas R. Einarsson og Matthías M.D. Hemstock flytja tónverkið

„Streng“.  Með tónverkinu verða sýnd myndbönd, m.a. frá Skagaströnd

og nágrenni

Fleiri fréttir