Dagskrá sjómannadagsins á Skagaströnd

Laugardaginn 4. júní hefst dagskrá sjómannadagsins á Skagaströnd kl. 10:30 með skrúðgöngu frá höfninni að Hólaneskirkju en þangað er fólk hvatt til að fjölmenna til að viðhalda skemmtilegu hefð.

Margt verur um að vera fram á kvöld en svona lítur dagskráin út:

  • kl. 11:00 Sjómannamessa í Hólaneskirkju.
  • Kór sjómanna syngur við athöfnina.
  • Að messu lokinni verður lagður blómakrans við minnismerki drukknaðra
  • sjómanna til að heiðra minningu þeirra.

kl. 13:15 Skemmtisigling.
Foreldrar hvattir til þess að fjölmenna með börn sín.

kl. 14:00 Skemmtun á Hafnarhúsplani.
Skemmtun hefst á fallbyssuskoti. Kappróður og leikir á plani.

kl. 15:30 Kaffisala í Fellsborg.
Rjúkandi heitt á könnunni og fjölbreytt bakkelsi.

kl. 23:00 Stórdansleikur í Fellsborg.
Hljómsveitin Matti og Draugabanarnir leikur fyrir dansi.

Allir að mæta og skemmta sér nú duglega.

Fleiri fréttir