Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra og Hvatningarverðlaun SSNV
Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra verður haldinn fimmtudaginn 31. október nk. í Dæli í Víðidal og hefst dagskráin kl. 14:00.
Degi atvinnulífsins er ætlað að skapa vettvang til kynningar á starfsemi sem fram fer á svæðinu og umræðu um atvinnumál. Þetta er í fjórða sinn sem SSNV stendur fyrir Degi atvinnulífsins á Norðurlandi vestra
Dagskrá:
Kl.14.00 Setning: Bjarni Jónsson, formaður SSNV
Kl.14.10 Ásdís Guðmundsdóttir, vinnumálastofnun. Get mobile.
Efling fyrirtækja til að ráða erlenda starfsnema (Evrópuverkefni).
Kl.14.40 Björg Ágústsdóttir, Alta. Kynning á svæðisgarði Snæfellsnesi.
Kl.15.10 Sigríður Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun - Brothættar byggðir
Kl.15.40 Stefán Haraldsson, SSNV atvinnuþróun. Fyrirtækin og Google Maps. Sýnikennsla í notkun Google Maps, TripAdvisor o.fl.
Kl.16.10 Kynning á fyrirtækjum sem tilnefnd hafa verið til Hvatningarverðlauna SSNV atvinnuþróunar 2013.
Kl.17.00 Hvatningarverðlaun SSNV afhent. Kaffi.
Fyrirtækin sem tilnefnd hafa verið til Hvatningarverðlauna SSNV 2013 eru:
Farfuglaheimilið Ósum
Geitafell Seafood Restaurant
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Selasigling ehf.
Sæluostur úr sveitinni