Dagur flónanna í dag
Í dag er 10. nóvember 2012 en hann er 314. dagur ársins (315. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. Þá er 51 dagur eftir af árinu og 44 dagar til jóla. Annað sem skemmtilegt er við dagsetninguna er hvernig hún er táknuð, 10.11.12. og til þess að blóðmjólka þetta atriði birtist þessi frétt á Feyki.is klukkan fjórtán mínútur yfir eitt eða 13:14.
Á Wikipedia eru skráðir atburðir sem gerðust þennan dag eins og að neðan greinir:
1630 - Dagur flónanna: Misheppnuð tilraun Maríu af Medici til að velta Richelieu kardinála úr sessi.
1674 - Stjórn Nýja Hollands gekk til Englands samkvæmd Westminster-sáttmálanum.
1848 - Í Kaupmannahöfn var stofnuð sérstök stjórnardeild til að annast málefni Íslands, Grænlands og Færeyja. Fyrsti forstöðumaður hennar var Brynjólfur Pétursson, lögfræðingur.
1871 - Henry Morton Stanley og David Livingstone hittust í bænum Ujiji á bökkum Tanganjikavatns og varð Stanley að orði: „Dr. Livingstone, vænti ég?“.
1913 - Járnbrautarlest var notuð til fólksflutninga á Íslandi í fyrsta skipti. Verktakar breyttu flutningalest og fluttu blaðamenn og farþega frá Reykjavíkurhöfn að Öskjuhlíð.
1928 - Vígð var brú yfir Hvítá í Borgarfirði hjá Ferjukoti og þótti mikið mannvirki.
1944 - Þýskur kafbátur sökkti farþegaskipinu Goðafossi út af Garðskaga er skipið var að koma frá Bandaríkjunum. Tuttugu og fjórir fórust en nítján björguðust.
1949 - Þjórsárbrú var vígð, 109 metra löng og 4,9 metrar á breidd á milli handriða.
1967 - Siglufjörður komst í vegasamband allt árið við opnun Strákaganga, sem voru lengstu göng á Íslandi, 800 metrar.
1984 - Raforkukerfi Íslands varð hringtengt þegar Suðurlína var tekin í notkun.
1990 - Pétur Guðmundsson kastaði kúlu 21,26 metra og bætti með því þrettán ára gamalt Íslandsmet Hreins Halldórssonar.
1995 - Nígeríska leikskáldið og umhverfisverndarsinninn Ken Saro-Wiwa var hengdur af nígerískum stjórnvöldum ásamt átta öðrum úr MOSOP.
2008 - Bjarni Harðarson þingmaður Framsóknarflokksins sendi óvart tölvupóst á fjölmiðla með harðri gagnrýni á Valgerði Sverrisdóttur og sagði af sér þingmennsku í kjölfarið.
Fædd
- 1232 - Hákon ungi, Noregskonungur (d. 1257).
- 1433 - Karl djarfi, hertogi af Búrgund (d. 1467).
- 1483 - Marteinn Lúther, þýskur munkur og siðbótarfrömuður (d. 1546).
- 1683 - Georg 2. Englandskonungur (d. 1760).
- 1697 - William Hogarth, enskur skopmyndateiknari (d. 1764).
- 1759 - Friedrich Schiller, þýskur rithöfundur (d. 1805).
- 1879 - Patrick Pearse, írskur uppreisnarleiðtogi (d. 1916).
- 1945 - Þórunn Magnea Magnúsdóttir, íslensk leikkona.
- 1955 - Bruno Peyron, franskur siglingamaður.
- 1964 - Magnús Scheving, íslenskur leikari.
- 1977 - Brittany Murphy, bandarísk leik- og söngkona (d. 2009).
Dáin
- 1605 - Ulisse Aldrovandi, ítalskur náttúrufræðingur (f. 1522).
- 1891 - Arthur Rimbaud, franskt skáld (f. 1854).
- 1938 - Kemal Atatürk, forseti Tyrklands (f. 1881).
- 1959 - Felix Jacoby, þýskur fornfræðingur (f. 1876).
- 1982 - Leoníd Bresnjev, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins (f. 1906).
- 2007 - Norman Mailer, bandarískur rithöfundur (f. 1923).
- 2008 - Miriam Makeba, suður-afrísk söngkona (f. 1932)