Dagur gegn einelti í Húnavallaskóla
Áttundi nóvember hefur verið tileinkaður baráttunni gegn einelti á Íslandi og tóku skólar landsins fullan þátt í því verkefni. Í Húnavallaskóla er lögð áherslu á að fólk beri virðingu fyrir hvert öðru og að allir geti unnið og leikið saman.
-Við ákváðum að sýna það með táknrænum hætti og sameinuðust allir námshópar í íþróttasalnum. Farið var í leiki þar sem reyndi á samvinnu og að lokum mynduðu nemendur orðin „verum vinir“. Að lokum sameinuðust allir nemendur og starfsmenn leik- og grunnskóla í Kjarna og sungu saman.
Myndir frá deginum er hægt að nálgast HÉR
Hér fyrir neðan er myndband frá þessum skemmtilega degi.
http://www.youtube.com/watch?v=-IypmXW0f24