Dagur leikskólans er í dag

Undanfarin ár hafa leikskólar landsins haldið upp á dag leikskólans með ýmsum hætti. Margir skólanna hafa skapað sér eigin hefð og brjóta starfið upp á einhvern hátt sem oft vekur athygli í nærumhverfinu.

Leikskólinn Ársalir er einn af þeim skólum sem ætla að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins og munu börnin á eldra stigi mæta í Skagfirðingabúð og taka lagið kl 10:15. Leikskólinn Tröllaborg á Hólum býður gestum til sín milli kl 15 og 16 í útikennslustofuna þar sem í boði verða nýbakaðar lummur og kakó.

Leikskólinn Birkilundur í Varmahlíð á 15 ára afmæli 6. febrúar og af því tilefni verður slegið upp afmælisveislu á degi leikskólans. Það verður opið hús milli kl 13:30 og 15:30 þar sem gestum verður boðið í kaffi og tertu og sýnd kvikmynd úr starfi skólans.

Við bjóðum góðan dag alla daga í leikskólum í Húnaþingi vestra. Þetta eru einkunnarorð Dags leikskólans sem haldinn er hátíðlegur fimmtudaginn 6. febrúar í Ásgarði, Garðavegi 7 á Hvammstanga, og leikskólanum á Borðeyri.

Skólarnir verða opnir almenningi frá kl. 9:00–11:00 og 13:00–14:00 og taka nemendur og starfsfólk skólanna fagnandi á móti gestum.

Aðstandendur dagsins hvetja alla sem starfa í leikskólum til að halda daginn hátíðlegan, vekja umræðu um hlutverk og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Viðurkenningin Orðsporið verður afhent á degi leikskólans, en eins og sagt hefur verið frá hér á vefnum er Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga tilnefndur til Orðsporsins.

Fleiri fréttir