Dálítil rigning eða slydda fram á kvöld
Hæg suðlæg átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en austan 5-13 á annesjum síðdegis. Dálítil rigning eða slydda fram á kvöld, síðan úrkomulítið. Suðaustan 5-13 og rigning seinni partinn á morgun. Hiti 1 til 7 stig.
Flestar aðalleiðir á landinu eru nú greiðfærar en þó er hálkublettir á heiðum. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði, Þverárfjalli og Öxnadalsheiði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Austan og suðaustan 5-10 m/s, en 10-15 með suðurströndinni. Rigning, en þurrt á Norður- og Austurlandi fram undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Hæg austlæg átt, en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum. Skúrir eða slydduél í flestum landshlutum, síst þó á Suðvesturlandi. Hiti 1 til 6 stig.
Á föstudag:
Norðaustan 10-15 á Vestfjörðum og snjókoma, en 5-10 í öðrum landhlutum og stöku él eða slydduél. Hiti 0 til 4 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir allhvassa norðanátt með snjókomu, en þurrt á sunnanverðu landinu. Frost 0 til 4 stig, en frostlaust með suðurströndinni.