Deiliskipulag fyrir Sölvabakka verður endurauglýst
Deiliskipulag fyrir Sölvabakka verður endurauglýst skv. nýjum skipulagslögum vegna formgalla við fyrri afgreiðslu en Skipulagsstofnun gerði athugasemd við hana. Deiliskipulagsgögnin hafa verið lagfærð m.t.t. umsagna Skipulagsstofnunar.
Þar sem um endurauglýsingu er að ræða er ekki þörf á að kynna lýsingu, né halda kynningarfund og við fyrri auglýsingu lá fyrir umsögn frá Fornleifavernd ríkisins þar sem ekki var gerð athugasemd við deiliskipulagið.
Deiliskipulagið og umhverfisskýrsla verður send Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra og Umhverfisstofnun til umsagnar samhliða auglýsingunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúa Blönduóss var á fundi bæjarstjórnar falið að ganga frá gögnum og endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir urðunar- og efnistökusvæði við Sölvabakka.