Dettur þú í lukkupottinn?

Áskrifendaleikur er nú í gangi hjá Feyki þar sem bæði nýir og og gamlir áskrifendur hafa tækifæri til að hreppa glæsilega vinninga. Fyrsti vinningur er gisting fyrir Tvo á Hótel KEA og miðar á leiksýningu að eigin vali á yfirstandandi leikhúsári hjá Leikfélagi Akureyri. Allir áskrifendur Feykis eiga möguleika á 1. vinningi.

Annar vinningur er frábær snjallsími úr Galaxy seríu Samsung. Síminn hefur allt sem flottur sími þarf í dag. Wi-Fi hotspot, DLNA, HD-upptöku og öflugan tveggja kjarna örgjörva. Aðeins nýir áskrifendur Feykis eiga möguleika á 2. vinningi sem og þeim þriðja en hann er bráðsmart NexTime veggklukka frá Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki. Tíminn mun að öllum líkindum líða ljúft með NexTime.

Dregið verður í áskriftarleiknum þann 16. október en þá er einmitt alþjóðlegi matardagurinn sem hefur ekkert með áskriftarleikinn að gera.

Feykir kemur út á hverjum fimmtudegi, stútfullur af öllu því sem skiptir íbúa á Norðurlandi vestra máli, og áskriftin er einungis kr. 1400 á mánuði. Hægt er að tryggja sér áskrift í síma 455 7171 eða á netfangið feykir@feykir.is.

Fleiri fréttir