Djásn og dúllerí hefur opnað jólamarkað á Skagaströnd
Galleríið Djásn og dúllerí á Skagaströnd hefur opnað jólamarkað. Mikil jólastemning er í galleríinu og þar eru falleg handverk af ýmsum toga á boðstólum. Aðstandendur Djásna og dúllerís bjóða alla velkomna í heimsókn. Galleríið verður opið frá kl. 14 - 18 alla laugardaga og sunnudaga til jóla. Einnig verður opið á Þorláksmessu frá kl. 14 - 21.
Eftir að hafa skoðað fjölbreytt úrval sýningarmuna er notalegt að tylla sér með kaffibolla í stássstofunni og ylja sér við „snarkandi arineld“, hlusta á jólatónlist eða líta í bók. Þá verður öðru hvoru lifandi tónlist í boði en það verður nánar auglýst síðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá galleríinu.
Söluvörur eru fjölbreyttast og er best lýst í eftirfarandi vísu:
Málverk, bjöllur, myndir, prjón,
möndlur, gler og sokkar.
Gjafavara gleður sjón
í galleríi okkar.