Djásn og dúllerí opið allar helgar til jóla

Handverksmarkaðurinn Djásn og dúllerí verður opinn allar helgar til jóla frá 14-18 og á Þorláksmessu frá kl. 14-21.

Eins og nafn markaðsins gefur til kynna má finna þar allskonar djásn og dúllerí, þar má nefna heklaðar jólabjöllur, útsaumaða púða, jólasveina, járnklukkur, brussubrellur, dömuveski og skartgripi.

Djásn og dúllerí má finna í kjallara gamla kaupfélagsins á Skagaströnd. Allir velkomnir en þar er alltaf kaffi á könnunni og kandís í skál.

Fleiri fréttir