Djúp lægð þokast yfir landið

Stormur er víðasthvar á norðvesturlandi þar sem 978 mb lægð þokast austur yfir landið.

Í dag verður norðan 18-23 m/s, rigning eða slydda og síðar snjókoma. Á morgun á að lægja og létta til, spáð kólnandi veðri þar sem frost verður 0 til 5 stig.

 

Spá næstu daga:

Á þriðjudag:
Hvöss norðanátt SA- og A-lands, annars mun hægari. Bjartviðri S- og V-til, en él um landið norðaustanvert. Dregur úr vindi og éljum síðdegis. Frost um mest allt land.

Á miðvikudag:
Vestlæg átt 3-10 m/s og bjart veður, en þykknar upp V-lands. Hlýnar á SV- og V-landi, víða frost annars staðar.

Á fimmtudag og föstudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið NA-lands. Hiti yfirleitt 1 til 7 stig.

Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir vætusamt og fremur milt veður.

Fleiri fréttir