Djúpa laugin í kvöld

Nemendafélag FNV á Sauðárkróki stendur fyrir nokkuð nýstárlegu uppátæki í kvöld en þá Verður Djúpa laugin sett á dagskrá en fyrirmyndin eru sjónvarpsþættir sem nutu mikilla vinsælda sjónvarpsáhorfenda.

 

Djúpa laugin hóf göngu sína á SkjáEinum í júní árið 2000 og var það jafnframt fyrsti stefnumótaþátturinn í íslensku sjónvarpi. Þá voru það þær Laufey Brá og Kristbjörg Karí sem settu sig í hlutverk ástarguðsins Amors og leiddu saman tvær leitandi persónur. Þátturinn var upphaflega á dagskrá á fimmtudagskvöldum og sendur út í beinni útsendingu frá Astró. Djúpa laugin féll strax vel í kramið hjá áhorfendum og vakti bæði umtal og athygli. ''

Á Fésbókarsíðu NFNV segir að herlegheitin byrji klukkan 20:00  og frítt er inn. „Ef einhver hefur áhuga á að skrá sig eða bara vantar upplýsingar, þá um að gera að tala við okkur á fb eða koma inn á nemó. KLIKKUÐ verðlaun í boði fyrir pörin“.

Fleiri fréttir