Dögun boðar til landsfundar 8.-10. mars

Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði, hefur boðað til landsfundar helgina 8.-10. mars næstkomandi og verður fundurinn haldinn á höfuðborgarsvæðinu. Á landsfundi verður kosið til ábyrgðarstarfa í framkvæmdaráð, úrskurðarnefnd og kjördæmaráð og ítarleg stefnuskrá lögð fram til umræðu og afgreiðslu. Auk þess munu fullskipaðir framboðslistar í öllum kjördæmum þá liggja fyrir.

Í samræmi við lög samtakanna mun og verða rætt og tekið til afgreiðslu með hvaða framboðum (flokkum) Dögun vilji starfa að kosningum loknum í löggjafar- og framkvæmdavaldi.

Fleiri fréttir