Dómari maímánaðar hjá Tindastól
Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Tindastóls tók þá ákvörðun fyrir sumarið að verðlauna þá einstaklinga sem eru duglegir að taka að sér að dæma á heimaleikjum Tindastóls í yngri flokka starfinu. Í verðlaun fyrir að vera leikjahæsti dómari í maí er gjafabréf frá Kaffi Krók og var Svetislav Milosevic (Milos) með flest dæmda leiki eða sjö talsins, vel gert.
Það voru svo félagarnir Guðni Bent Helgason og Aron Gabríel Samúelsson, leikmenn í 4. flokki karla, sem voru saman í 2. sæti en þeir dæmdu báðir fimm leiki í maí og eru búnir að vera flottir á línunni. Þeir fengu einnig gjafabréf frá Kaffi Krók. En hver er Svetislav Milosevic? Feykir sendi Milos nokkrar spurningar en hann er nýr leikmaður hjá meistaraflokki karla hjá Tindastól.
Hvaðan ertu: fæddist í París, Frakklandi.
Aldur: 28 ára gamall.
Lífsmottó: Lífið er gjöf, nýttu það sem best.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og með hvaða liðum hefur þú spilað? Ég byrjaði 5 ára gamall, hjá Boulogne-Billancourt, einum af bestu unglingaþjálfunar-klúbbum í Frakklandi.
Ertu með einhverja sérvisku eða hjátrú fyrir leiki? Fyrir hvern leik hlusta ég á tónlist, og áður en ég fer út úr klefanum set ég á mig hægri skóinn fyrst og svo vinstri skóinn.
Hver er þín helsta fyrirmynd í fótboltanum? Fyrirmyndin mín er Karim Benzema, liðsmaður með ótrúlegan leikskilning og fullkomna tækni. Hann er jafn góður í sendingum og skotum.
Ef þú mættir velja einn leikmann til að spila með Tindastól í sumar, hver yrði fyrir valinu og hvað kæmi hann með til liðsins? Núverandi leikmaður klúbbsins, Juan Carlos Dominguez Requena, myndi koma með sína reynslu, spænska leikskilninginn og brjálæðið.
Nú hefur þú fengið þann heiður að vera dómari mánaðarsins – hefur þú gaman að því að dæma leiki? Já, mér líkar það. Ég er jafnvel að hugsa um að verða dómari eftir fótboltaferilinn minn.
Hvað er erfiðast við að dæma hjá yngri flokkunum? Ætli erfiðasti hlutinn sé ekki að láta leikmennina skilja að þeir þurfa að einbeita sér einungis að þeirra leik, ekki ákvörðunum dómara. Það er óhjákvæmilegt að leikmenn verði vonsviknir yfir dómgæslunni, það er bara þannig.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir fyrir utan að spila fótbolta? Ætli það sé ekki að spila pílu með yfirmanni mínum, Ísaki Sigurjónssyni.