Dregur smám saman úr vindi með morgninum

Suðvestan ofsaveður er fram undir kl. 09 til 10 á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi, en dregur smám saman úr vindi með morgninum, sunnan 8-15 annað kvöld. Frost 1 til 6 stig. Á Norðurlandi er hálka á flestum vegum og víðast hvar mjög hvasst. Ófært er á Öxnadalsheiði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 8-15 m/s og víða él en úrkomulítið austantil á landinu. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum.
Á fimmtudag:
Norðlæg átt 8-13 m/s og él norðanlands, en bjart sunnan- og vestanlantil. Dregur úr vindi og éljum þegar líður á daginn, en snýst í vaxandi suðaustan átt og þykknar upp suðvestantil um kvöldið. Heldur kólnandi í bili.
Á föstudag:
Suðaustlæg átt 8-15 m/s, snjókoma og frost 0 til 6 stig, en slydda við suðurströndina og hiti um frostmark.
Á laugardag:
Austlæg eða breytileg átt og snjókoma, en skýjað með köflum og stöku él sunnan- og vestanlands. Fremur kalt í veðri.
Á sunnudag:
Útlit fyrir vaxandi norðan átt með snjókomu eða éljum, en úrkomulítið sunnanlands. Vægt frost.
Á mánudag:
Líkur á hæglætisveðri.