Dregur úr vindi eftir hádegi
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðvestan 13-20 en dregur úr vindi eftir hádegi. Sunnan 5-10 í kvöld en gengur í norðan 5-10 síðdegis á morgun. Skúrir eða él. Hiti 1 til 6 stig en 0 til 4 stig á morgun. Vegir eru mikið til auðir á Norðurlandi, hálkublettir eru þó á Öxnadalsheiði.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag (skírdagur):
Gengur í suðlæga átt, 15-23 m/s seinni partinn með talsverðri rigningu eða slyddu, en snjókomu inn til landsins. Hægari NA-lands og úrkomulaust fram á kvöld. Hlýnar í veðri.
Á föstudag (föstudagurinn langi):
Suðvestan 13-20 með skúrum eða éljum, en hægari og bjartviðri NA-til. Dregur úr vindi og éljum með kvöldinu. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins.
Á laugardag:
Suðvestan 5-13 og skúrir eða él, en bjartviðri A-til. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins.
Á sunnudag (páskadagur):
Suðaustlæg átt, 3-10 m/s. Rigning með köflum en bjartviðri á N- og A-landi, Hiti 0 til 7 stig.
Á mánudag (annar í páskum):
Suðlæg átt, skýjað með köflum og væta með suður og vesturströndinni en léttskýjað austantil. Hiti 0 til 5 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðaustanhvassviðri með rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri.