Dreifikerfi hitaveitu um Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir athugasemdum vegna fyrirhugaðrar lagnaleiðir hitaveitu til Skagastrandar en samningur þess efnis var undirritaður við RARIK þann 30. desember sl.
Hönnun dreifikerfis um byggðina Skagaströnd liggur fyrir og verður lögð til grundvallar fyrir efnispöntun og útboð framkvæmda við lagningu kerfisins. „Til að tryggja sem besta niðurstöðu og réttasta lýsingu á efni og vinnu er auglýst eftir athugasemdum við fyrirhugaðar lagnaleiðir,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins Skagastrandar.
Þá er skorað sérstaklega á húseigendur á Skagaströnd að kynna sér uppdrátt sem birtur er á heimasíðunni www.skagastrond.is/hitaveita.asp og liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins og gera athugasemdir ef þeir telja að lagnaleiðir megi betur fara. Tekið er sérstaklega fram að nákvæm staðsetning heimæðar í hvert hús verður ekki ákveðin með umræddum uppdrætti en haft verður samráð við húseigendur um það þegar að framkvæmdatíma kemur.
Ljósleiðaralagnir verða lagðar samhliða lögnum hitaveitunnar til þeirra sem taka inn hitaveitu og þarf að gera ráð fyrir inntaksboxi ljósleiðara fyrir innan húsvegg.
Frestur til athugasemda við uppdráttinn er veittur til 6. febrúar 2012. Athugsemdum skal komið á framfæri á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar með því að leggja þar fram skriflegar athugsemdir eða með tölvupósti á magnus@skagastrond.is og taeknifr@skagastrond.is.