Dreifnám í A-Hún til umræðu á bæjarstjórnarfundi

Möguleikinn á að koma á dreifnámi í Austur Húnavatnssýslu var til umræðu á fundi bæjarstjórnar Blönduóssbæjar sl. miðvikudag en samkvæmt fundargerð áttu sér þar stað miklar og góðar umræður.

Á fundinn komu Þorkell Þorsteinsson aðstoðarskólameistari Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra fyrir hönd skólans og og Rakel Runólfsdóttir, umsjónarmaður  dreifnámsbrautar á Hvammstanga. Þorkell kynnti hugmyndir FNV varðandi hugsanlega dreifnámsbraut á Blönduósi og Rakel fræddi viðstadda um hennar starf og í hverju það fælist ásamt ýmsu öðru sem tengdist dreifnámsbrautinni.

Þangað voru einnig komin Skúli Þórðarson sveitarstjóri og Eydís Aðalbjörnsdóttir félagsmálastjóri Húnaþings vestra og fóru þau yfir aðdraganda að stofnun dreifnámsbrautar í Húnaþingi vestra og hvernig til hefur tekist en dreifnámsbrautin tók til starfa á Hvammstanga í haust.

Auk þessara aðila var Guðjón Ólafsson frá Skólaþjónustu A-Hún. á staðnum og þrír gestir frá Strandabyggð til að fylgjast með umfjöllun og undirbúningi heimaaðila vegna verkefnisins en undirbúningur að stofnun framhaldsdeildar á Hólmavík næsta haust stendur nú yfir.

Fleiri fréttir