„Drottinn gerðu hljótt í hjarta mínu“ í Hólaneskirkju
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
11.03.2014
kl. 09.06
Uppskeruhátíð tónlistardaga kórs Hólaneskirkju í máli og tónum var haldin í Hólaneskirkju á Skagaströnd sl. sunnudaginn. Kórinn tók þátt í raddþjálfunarnámskeiði um helgina undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur organista og Önnu Sigríðar Helgadóttur messó sópran.
Minningarsjóður um hjónin frá Garði og Vindhæli styrkti verkefnið. Á meðfylgjandi myndbandi, sem Björn Ingi Óskarsson birti á Facebook síðunni Menningarlíf á Skagaströnd, syngur kórinn „Drottinn gerðu hljótt í hjarta mínu“ á uppskeruhátíðinni.