Drykkjarbrúsar merktir Sprota innkallaðir
Landsbankinn hefur ákveðið af öryggisástæðum að innkalla alla nýlega drykkjarbrúsa sem merktir eru Sprota. Komið hefur í ljós að tappi brúsans getur losnað og það gæti valdið börnum hættu. Um er að ræða litla brúsa í fimm mismunandi litum með svörtum tappa.
Drykkjarbrúsarnir hafa nú þegar verið teknir úr umferð í útibúum bankans. Þá verður send út tilkynning til viðskiptavina bankans og forráðamanna barna í viðskiptum, þar sem beðist er velvirðingar á þeim óþægindum er þetta kann að valda og þess óskað að viðskiptavinir fargi brúsum eða skili þeim í næsta útibú bankans. Sömuleiðis hefur bankinn gert viðvart þeim stofnunum sem fara með neytendaöryggi og öryggi barna.
Ábending um ótryggan frágang á brúsunum barst frá viðskiptavini bankans síðdegis í gær og brást starfsfólk bankans þegar við. Landsbankinn leggur mikið upp úr öryggi þeirra gjafavara sem ætlaðar eru yngstu viðskiptavinunum og því er ofangreind ákvörðun tekin.