Dúfnaveisla á Blönduósi og Sauðárkróki
Dúfnaveisla 2012 var formlega sett af stað sunnudaginn 1. júlí með því að fulltrúi frá Skotvís Indrið R. Grétarsson á Sauðárkróki ásamt Steinari Rafni Beck Umhverfisstofnun og Finni Steingrímssyni Skotfélagi Akureyrar skutu á nokkrar dúfur á Sportingvelli Skotfélags Akureyrar. Dúfnaveislan er samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar (UST), Skotveiðifélags Íslands (SKOTVÍS), ýmissa félaga sem reka skotvelli auk styrktaraðila.
Tilgangur Dúfnaveislunnar er að hvetja veiðimenn um land allt til að kynna sér þá aðstöðu sem skotvellirnir hafa uppá að bjóða og stunda reglulegar skotæfingar áður en veiðitímabilið hefst og undirbúa sig eins og best verður á kosið.
Samhliða Dúfnaveislu þá er komið í gagnið Dúfnatal en það er vefforrit þar sem hægt að skrá niður þann fjölda dúfa sem maður hittir þegar farið er á völlinn og halda þar með einskonar bókhald um skotfimina. Dúfnatal er öllum opið og hægt er að sjá nánari upplýsingar á Skotvellir.is