Dúó Stemma heimsækir Heimilisiðnaðarsafnið
Í tilefni af íslenska safnadeginum þann 17. maí n.k. verður Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi opið frá kl. 13:00 til 17:00. Klukkan 14:00 þann sama dag munu hefjast Stofutónleikar í safninu með Dúó Stemmu, skv. fréttatilkynningu frá Heimilisiðnaðarsafninu.
Dúó Stemmu skipa Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari og munu þau flytja fjölbreytta efnisskrá. Aðgangseyrir er kr. 1000 en ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Í fréttatilkynningunni er jafnframt greint frá því að þann 31. maí verður opnuð Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins „Fínerí úr fórum formæðra“ en það er Guðrún Auðunsdóttir listakona sem sýnir verk sín. Sýningin er tileinkuð þeim tímamótum að 100 ár eru frá því íslenskar konur fengu kosningarétt. Aðgangur er ókeypis á opnunardaginn og verður sýningin opin á opnunartíma safnsins í allt sumar.
Frá 1. júní til 31. ágúst verður Heimilisiðnaðarsafnið opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00. „Nú höfum við hækkað aðgangseyri sem verður kr. 1100 en kr. 800 fyrir hópa. Ókeypis er fyrir 16 ára og yngri,“ segir loks í fréttatilkynningunni.