Dýrðardagar á Húnavöllum

Dýrðardagar verða haldnir í þriðja sinn 13. til 18. ágúst að Hótel Húnavöllum.

Dýrðardagar eru hugsaðir fyrir alla sem vilja byggja sig upp andlega og fræðast um andleg mál í rólegu og góðu umhverfi. Boðið er upp á göngu og hugleiðslu á hverjum morgni og námskeið/fræðslustund eftir hádegi þar sem fjallað er um misunandi efni. Farið verður að upplifa álfa og aðrar náttúruverur og í Borgarvirki. Einn heilunartími er innifalinn í þátttökugjaldinu. Yfir daginn verða fjölbreyttir einkatímar í boði t.d. hjá miðli, spákonum, fyrrilífa heilun, transheilun, nudd, dáleiðslu og fleira. Greitt er sérstaklega fyrir einkatímana en allir veita góðann afslátt af sinni vinnu.

Á Húnavöllum er frábær aðstaða til að slaka á og njóta, þar er 17 metra sundlaug, heitur pottur og fallegt umhverfi.

Þátttaka kostar aðeins 38.000 k., innifalið er gisting, morgunmatur, hádegismatur og kvöldverður, dagskráin (hugleiðslur, ferðir, námskeið og fl.) og heilunartími. Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari á Culina (Áður á næstu grösum), mun sjá um matseldina.

Frekari upplýsingar gefur Hrönn Friðriksdóttir spámiðill í síma 861-2505 eða hronn@spamidill.com

https://www.facebook.com/dyrdardagar 

Frekari upplýsingar um Húnavelli er að finna á heimasíðu hótelsins: http://hotelhunavellir.is/Is/Forsida.aspx

Fleiri fréttir