Dyrnar að Eden liggja undir skemmdum

Sparisjóður Vestmannaeyja gáfu Hveragerðisbæ hurðir á dögunum, skornar út í líki Adams og Evu og stóðu við inngang Edens, sem brann sl. sumar. Framhlið umræddra hurða voru það eina sem ekki fuðraði upp með byggingunni. Bæjarráð Hveragerðis þáði hurðirnar á dögunum með þeim fyrirvara um að ekki yrði ráðist í viðgerðir. Erlendur F. Magnússon smiðurinn og listamaðurinn á bakvið hurðirnar hefur sóst eftir að fá þær til viðgerðar án árangurs. „Framhliðin er þegar farin að bogna og springa og ef ekkert verður að gert fljótlega springur framhliðin enn frekar og útskurðurinn eyðileggst,“ sagði Erlendur í viðtali við Feyki.  

 

Í Eden var gríðarmikið af handverki eftir Erlend og var það mikið áfall þegar Eden brann síðastliðið sumar. Hurðirnar voru þó vel sviðnar og gegnbrenndar við dýpstu útskurðina, auk þess sem límið hafði hitnað og því við það að detta í sundur, „hefðu þeir opnað hurðirnar hefði þær sloppið,“ sagði Erlendur og bætti við: „Það þótti kraftaverk að þær hefðu yfir höfuð sloppið og yfirlýsingar voru gefnar út um að það yrði gert við þær og þær varðveittar. Þar sem ég hannaði, smíðaði og skar þær út bauðst til að gera þær upp, þannig að þær myndu varðveitast. Kostnaðurinn hljómaði uppá rúmar 600 þúsund krónur, en var enginn áhugi fyrir því. Loks bað ég um að fá þær til viðgerðar á minn kostnað en fékk ekkert svar.“

„Hurðirnar verða settar í geymslu þar til hefur verið ákveðið hvað á að gera við þær. Að svo stöddu erum við ekki að fara í kostnaðarsamar viðgerðir á þeim, við hefðum kannski gert það árið 2007 en nú er bara kreppa,“ sagði Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hveragerðis í samtali við Feyki.

Minjar endurfæðast við brimrótið

Erlendur F. Magnússon smiður og listamaður er búsettur í elsta íbúðarhúsinu á Blönduósi, fyrir miðju í gamla bænum. Erlendur iðinn við listsköpun sína á baklóðinni og má sjá fjölmörg listaverkin umhverfis húsið hans að Brimslóð en þegar illa viðrar situr hann við skriftir og horfir út yfir vinnusvæði sitt. Þar sækir hann jafnframt innblástur úr fegurðinni í brimrótinu og kraft frá norðurskautinu sem er beint handan við sjóndeildarhringinn.

„Okkur kettinum líður afskaplega vel hérna. Hann þræðir á milli listaverkanna og leikur sér. Ég hef tekið eftir því að fuglarnir sækja líka mikið í verkin,“ sagði Erlendur og bætir loks við: „Það er verst hvað þeir skíta mikið á þau, en þá pússa ég það bara af með erminni.“

Erlendur er í forsíðuviðtali Feykis, fréttablaði á Norðurlandi vestra sem kom út í gær.  

 

 

 

 

Fleiri fréttir