Ég mótmæli
Undanfarið hefur dunið á okkur niðurskurður í heilbrigðismálum. Heilbrigðisstarfsmenn undanfarinna ára og áratuga þekkja vel til sparnaðar þar sem stanslaust hefur verið þjarmað að heilbrigðiskerfinu. Nú er komið nóg. Það er æpt úr öllum áttum að ekki sé til nægt fé til að reka þá þjónustu sem er í dag . Verið er að stytta opnunartíma heilsugæslu á mörgum stöðum, læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk flýr landið, víða eru tæki og tól orðin gömul og úr sér gengin, deildir eru lagðar niður. Þannig mætti áfram telja.
Á sama tíma og skorið er niður er verið er að tala um að setja fjármagn í að byggja nýtt “hátækni” sjúkrahús í Reykjavík. Það er gott og gilt að byggja nýtt sjúkrahús og sjálfsagt löngu tímabært. En okkur sem stöndum að egmotmaeli.is finnst ekki tímabært að byggja nýtt sjúkrahús þegar við á sama tíma höfum ekki efni á að reka heilbrigðiskerfið eins og það er í dag. Að okkar mati er fjármagni ekki forgangsraðað rétt. Þegar öllu er á botninn hvolft kemur fjármagnið á endanum úr sama vasanum.
Undirskriftasöfnun fer nú fram á vefnum egmotmaeli.is vegna niðurskurðar í heilbrigðismálum og eru sem flestir hvattir til að skrifa undir.
Þetta málefni varðar okkur öll, hvar sem við stöndum, í Reykjavík, fyrir norðan, austan, sunnan og vestan. Hvar sem við stöndum þá þurfum við fyrr eða síðar að nota þessa þjónustu.
/Fréttatilkynning