Ein úthlutun Menningarráðs á þessu ári
Menningarráð Norðurlands vestra hefur auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.
Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa eina úthlutun á árinu 2012, með umsóknarfresti til og með 15. mars og hafa þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
- • Fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar og lista.
- • Efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.
- • Stuðla að nýsköpun og þróun í menningu og menningartengdri ferðaþjónustu.
- • Menningarstarfsemi styðji við ferðaþjónustu.
- • Verkefni sem stuðla að þátttöku allra þjóðfélagshópa í menningarstarfi.
- • Verkefni sem leiða til samstarfs við önnur lönd á sviði menningar og lista.
- • Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra og skulu umsóknir vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Þar er einnig hægt að finna þær upplýsingar sem nauðsynlegt er að hafa í huga fyrir áhugasama.