Einar K. leiðir lista sjálfstæðismanna

Einar Kristinn Guðfinnsson leiðir lista sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi og var hann sjálfkjörinn í það sæti. Í annað sætið fékk Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands afgerandi kosningu sem og Eyrún Sigþórsdóttir í það þriðja. Fjórða sæti kemur svo í hlut Sigurðar Arnar Ágústssonar frá Geitaskarði.

Niðurstöðurnar úr Norðvestur kjördæmi eru á þessa leið:

1.       Sæti Einar Kristinn Guðfinnsson, sjálfkjörinn

2.       Sæti Haraldur Benediktsson

  • Atkvæði alls: 229
  • Bergþór Ólason 32
  • Eyrún Sigþórsdóttir 73
  • Haraldur Benediktsson 90
  • Sigurður Örn Ágústsson 33
  • Auðir/Ógildir 1

 

3.       Sæti Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir

  • Atkvæði alls: 228
  • Eyrún Sigþórsdóttir 173
  • Guðmundur Kjartansson 7
  • Sigurður Örn Ágústsson 47
  • Auðir/ógildir 1

 

4.       Sæti Sigurður Örn Ágústsson

  • Atkvæði alls: 229
  • Bergþór Ólason 91
  • Sigurður Örn Ágústsson 137
  • Auðir/ógildir 1

Fleiri fréttir