Einar Kári nýr sérfræðingur á Sauðárkróki um velferð dýra

Matvælastofnun auglýsti í sumar stöður sérfræðinga vegna eftirlits með velferð og aðbúnaði dýra en með nýjum lögum um velferð dýra og búfjárhald sem taka gildi um næstu áramót flytjast m.a. verkefni frá sveitarfélögum til Matvælastofnunar. Einar Kári Magnússon ráðinn á Sauðárkrók.

Á vef Matvælastofnunar segir að alls hafi borist sextíu umsóknir og hefur Matvælastofnun ráðið eftirfarandi starfsmenn sem hefja munu störf í byrjun næsta árs en allir hafa þeir menntun á sviði búvísinda.

  • Sauðárkrókur:  Einar Kári Magnússon
  • Reykjavík:  Antonía Hermannsdóttir
  • Borgarnes:  Guðlaugur Antonsson
  • Akureyri:  Sigtryggur V. Herbertsson
  • Egilsstaðir:  Ásdís Helga Bjarnadóttir
  • Selfoss:  Óðinn Örn Jóhannsson

Fleiri fréttir