Einar Kristján nýr sveitarstjóri Húnavatnshrepps
Einar Kristján Jónsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnavatnshrepps og mun hann hefja störf 15. ágúst næstkomandi. Alls sóttu 16 um starfið.
Einar Kristján er fæddur á Akranesi árið 1971. Hann lauk sveinsprófi í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 1995 og rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2008. Þá hefur hann undanfarin ár stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands samhliða störfum sínum.
Einar Kristján var deildarstjóri rekstrarsviðs Vátryggingafélags Íslands hf. 2003-2008 og rekstrarstjóri Hreinsibíla hf. 2008-2010. Hann var verkefnastjóri eignaumsjónar og gæðaeftirlits hjá Frumherja hf. 2010-2014.
Einar Kristján:
„Ég hlakka mjög til að taka við starfi sveitarstjóra í Húnavatnshreppi og kynnast því ágæta fólki sem þar býr. Sveitarfélagið stendur traustum fótum og býr yfir ýmsum möguleikum. Ég mun gera allt til að láta gott af mér leiða í þágu sveitarfélagsins og byggja upp enn betra samfélag til framtíðar.“
Einar Kristján hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar- og félagsstörfum í gegnum tíðina. Hann sat m.a. í Íþrótta- og tómstundaráði Kópavogsbæjar 2002-2006 og var formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar 2006-2009. Þá hefur hann m.a. setið í stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands, Glímusambands Íslands og varastjórn Ungmennafélags Íslands. Einar Kristján var formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks 2006-2013. Hann hefur m.a. verið sæmdur silfurmerki Knattspyrnusambands Íslands, gullmerki Breiðabliks og gullmerki Ungmennafélags Íslands fyrir störf sín.
Einar Kristján er kvæntur Liselottu Elísabetu Pétursdóttur, viðskiptafræðingi, og eiga þau tvö börn.
Um 410 manns búa í Húnavatnshreppi. Skrifstofa hreppsins er á Húnavöllum.
Nánari upplýsingar veitir Einar Kristján í s. 842-5800 og Þorleifur Ingvarsson, oddviti Húnavatnshrepps, í s. 893-4006.
/Fréttatilkynning