Einar Óli Fossdal er maður ársins á Norðurlandi vestra

Eins og undanfarin ár völdu lesendur Feykis og Feykis.is mann ársins úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af íbúum svæðisins. Þau átta sem í kjöri voru fengu öll atkvæði enda vel að kjörinu komin en baráttan stóð á milli þeirra Einars Óla Fossdal á Blönduósi og Stefáns Pedersen á Sauðárkróki en þeir tveir fengu flest atkvæðin og var mjótt á munum. Á hæla þeirra kom Hvammstangabúinn Ómar V. Karlsson.

Einar Óli Fossdal, fyrrum formaður Rauða krossins í A-Hún, sjúkraflutningamaður og ráðsmaður á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi fékk tilnefningu fyrir óeigingjarnt starf sem tekur málefni og markmið annarra ofar eigin hag. Auk þess að bjarga mannslífum í vinnu sinni sem sjúkraflutningamaður eyðir hann mikið af sínum frítíma í sjálfboðavinnu með Rauða krossinum. Einnig fer hann og hjálpar gamla fólkinu á spítalanum ef þeim finnst eitthvað að hjá sér án þess að fá greitt fyrir það sérstaklega. Fleiri tilmæli voru höfð um Einar Óla en hann hefur verið einn af forvígsmönnum hollvina Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi og staðið í fararbroddi þeirrar hreyfingar í stríði hennar við ríkisstjórn landsins í niðurskurðaratlögum á heilbrigðissviðinu.

Feykir óskar Einari Óla til hamingju með útnefninguna.

Fleiri fréttir