Einar Örn og Hulda Birna áfram með Húnavöku
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
04.05.2011
kl. 08.54
Menningarnefnd Blönduósbæjar hefur ákveðið að semja við hjónin Einar Örn Jónsson og Huldu Birnu um umsjón Húnavöku 2011.
Einar Örn og Hulda Birna eru öllum hnútum kunnug þegar kemur að skipulagningu og framkvæmd Húnavöku en þau hafa síðustu ár oftar en ekki haft yfirumsjón með hátíðinni með góðum árangri.
