Ekkert ferðaveður í nótt
Á vef Morgunblaðsins í dag vara veðurfræðingar á Veðurstofunni við því að veður fari versnandi síðdegis og í kvöld. Í nótt verður slæmt ferðaveður um mest allt land og fram eftir morgni á morgun. Vetrarfærð er í öllum landshlutum, víða hálka eða snjóþekja.
Veðurspá næsta sólarhringinn:
Vaxandi austanátt SV-til, en annars hæg breytileg átt. Víða léttskýjað. Austan 8-20 m/s síðdegis, hvassast og él syðst, annars úrkomulítið. Austan 18-25 S- og SV-lands seint í kvöld. Slydda eða rigning þar í nótt en slydda eða snjókoma N- og A-til undir morgun. Snýst í mun hægari suðlæga átt í fyrramálið, fyrst SV-lands. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum NA-lands. Hlánar við S-ströndina í dag og víða 0 til 5 stiga hita á morgun.
Það eru hálkublettir á höfuðborgarsvæðinu og eins á Reykjanesbraut og Suðurnesjum. Hálka er á Sandsskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Suðurlandi.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja víðast hvar. Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði eru ófærar.
Hálka er einnig á velflestum vegum á Norðurlandi og Austurlandi en sumstaðar snjóþekja. Éljagangur er með ströndinni norðaustanlands. Þæfingsfærð er á Dettifossvegi. Breiðdalsheiði og Öxi eru opnar. Hálka er með suðausturströndinni.