Ekkert flug milli Akureyrar og Amsterdam í vetur

Mynd:northiceland.is/
Mynd:northiceland.is/

Ekkert verður af fyrirhuguðum flugferðum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel í vetur. Áætlun gerði ráð fyrir 10 flugferðum frá Amsterdam til Akureyrar í febrúar og mars 2021, en vegna heimsfaraldurs Covid-19 munu þær falla niður.

Nýgengi smita í Hollandi og víðar á meginlandi Evrópu er enn mjög hátt og miklar takmarkanir á ferðalögum fólks. Voigt Travel mun þess í stað einbeita sér að sölu ferða næsta sumar, en stefnt er að vikulegum flugferðum frá 7. júní til loka ágúst. Jafnframt eru áform um flugferðir næsta vetur, frá febrúar 2022.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir