Ekki í framboði fyrir komandi alþingiskosningar

Landsfundur SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar hefur samþykkt að bjóða ekki fram í komandi alþingiskosningum heldur einbeita sér að því að hafa mótandi áhrif á stjórnmálaumræðuna. Flokkurinn mun beita sér fyrir lausnarmiðaðri umræðu á opinberum vettvangi um brýn mál sem varða lausn á skuldavanda heimilanna, afnám gjaldeyrishafta án þess að snjóhengjunni verði varpað á íslenska skattborgara, betra peningakerfi og framtíðarsýn án ESB-aðildar.

Í fréttatilkynningu frá flokknum kemur fram að skorað var á Lilju Mósesdóttur á fundinum að gefa kost á sér til formanns flokksins. Hún varð við áskoruninni og var kjörin formaður SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar með atkvæðum allra á fundinum.

Rakel Sigurgeirsdóttir er varaformaður og aðrir í stjórn flokksins eru: Jón Kr. Arnarson, Eiríkur Ingi Garðarsson og Jónas P. Hreinsson. Þessir eru varamenn: Hallgeir Jónsson og Helga Garðarsdóttir.

 

Fleiri fréttir