Ekki kjósa – jú, kjóstu!

Stjórnarskrárfélagið vekur athygli á síðunni 20.oktober.is þar sem hvatningarmyndbönd félagsins eru samankomin. Þar má fyrst nefna framhald myndbandsins "Ekki kjósa" sem hefur verið skoðað ca. 46.000 sinnum en þar láta landsþekktir einstaklingar sig kosninguna engu varða .. eða hvað? Nýja myndbandið er á öðrum nótum en hið fyrra.

Auk þess eru á síðunni 16 stutt myndbönd með sama listafólki auk frú Agnesar M. Sigurðardóttur sem hvetur landsmenn til að nýta lýðræðislegan rétt sinn og kjósa. Hægt er að sjá myndböndin HÉR

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið „Ekki kjósa“

http://vimeo.com/50947908#

Fleiri fréttir