Él, snjókoma og slydda
Á veginum milli Sauðárkróks og Siglufjarðar er krapi eða snjór samkvæmt vef Vegagerðarinnar, og eins er ástandið um Vatnsskarð. Flughált er á veginum milli Skagastrandar og Blönduóss en annars er hált á öðrum vegum á Norðurlandi vestra. Veðurstofan spáir hægri breytilegri átt og úrkomulitlu í dag, en norðaustan 5-10 á morgun og dálítilli él. Norðan 8-13 á morgun og éljagangur. Frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðan 5-13 m/s með snjókomu eða éljum N- og A-lands, en bjartviðri syðra. Frost 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 á Vestfjörðum. Él á N-verðu landinu, en úrkomulaust að mestu annars staðar. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á mánudag:
Norðaustan 3-10 m/s. Dálítil él, en léttskýjað sunnan heiða. Hiti breytist lítið. Vaxandi suðaustanátt S- og V-lands um kvöldið og þykknar upp.
Á þriðjudag:
Hvöss austlæg átt og snjókoma eða slydda víða um land. Hiti kringum frostmark S-lands, annars vægt frost.
Á miðvikudag:
Austlæg átt og él S-til á landinu, annars úrkomulítið. Frost 0 til 8 stig, mest inn til landsins.
Á fimmtudag:
Líklega skammvinn norðanátt með ofankomu, en björtu á S- og V-landi. Áfram frost um allt land.